Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn
Landmótunar sf.
, mótt. 22. september 2016, varðandi breytingu á deiliskipulagi Gömlu hafnarinnar - Vesturbugtar. Í breytingunni felst að gert er ráð fyrir nýrri göngubryggju austan við lóð Grandagarðs 8 sem tengir núverandi bryggju við gönguleið / bryggju við Rastagötu, samkvæmt uppdr.
Landmótunar sf.
, dags. 4. október 2016. Tillagan var auglýst frá 31. október 2016 til og með 12. desember 2016. Eftirtaldir aðilar sendu athugasemdir: Stefán Geir Þórisson hjá Forum lögmönnum f.h. Brimgarðs ehf., dags. 12. desember 2016.