Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 27. febrúar 2015 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 24. febrúar 2015 þar sem spurt er um leyfi til að endurbyggja og stækka bakhús á lóð nr. 3B við Skólastræti samanber fyrirspurn BN048659. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 5. mars 2015..