Lögð fram umsókn skrifstofu eigna og atvinnuþróunar dags. 6. september 2018 varðandi breytingu á deiliskipulagi fyrir lóðina nr. 67 við Sólvallagötu, Vesturbæjarskóli. Í breytingunni felst að lóðin er stækkuð í suðvesturenda. Vesturvallagata er lögð af sem akstursgata milli Hringbrautar og Ásvallagötu og bætist það svæði við lóðina. Fjögurra m. breið gönguleið á milli skólalóðar og lóðanna Ásvallagötu 81 og Hringbrautar 112-114. Girðing meðfram lóðarmörkum á stækkun lóðar skal vera hámark 1.2 m. á hæð, samkvæmt uppdr. umhverfis- og skipulagssviðs dags. 4. september 2018.
Svar
Vísað til umsagnar verkefnisstjóra. Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1193/2016.