Lögð fram tillaga umhverfis- og skipulagssviðs dags. 15. júní 2020 að breytingu á skilmálum deiliskipulags lóðarinnar nr. 67 við Sólvallagötu 67, Vesturbæjarskóli. Í breytingunni felst að í stað flutningsheimildar á húsinu, sem stendur í suðvesturhorni lóðarinnar (áður Hringbraut 116-118), er heimilt að rífa það. Einnig er lögð fram umsögn Borgarsögusafns Reykjavíkur dags. 10. júní 2020.