Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 17. apríl 2018 þar sem sótt er um leyfi til að byggja inndregna 5. hæð ofaná hús og innrétta 22 íbúðir á 2. - 5. hæð, stækka glugga, koma fyrir svölum, byggja stiga- og lyftuhús og hjóla- og vagnageymslur sem verða sameiginlegar með húsi nr. 20 á baklóð húss á lóð nr. 18 við Brautarholt. Erindi fylgir bréf hönnuða um skipulagsforsendur dags. 4. janúar 2018 og minnisblað um brunamál dags. 19. febrúar 2018. Stækkun: xx ferm., xx rúmm. Eftir stækkun, mhl. 01: 1.393,5 ferm., 4.887,2 rúmm. Mhl. 02: 125,4 ferm., 375,6 rúmm. Gjald kr. 11.000