Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 2. júlí 2021 var lögð fram fyrirspurn
Landslaga slf.
dags. 15. júní 2021 ásamt bréfi dags. 14. júní 2021 um breytingu á aðalskipulagi Reykjavíkur sem felst í að rekstur matvöruverslunar verði heimilaður á lóð nr. 2-4 við Lambhagaveg, samkvæmt tillögu
THG arkitekta ehf.
ódags. Fyrirspurninni var vísað til deildarstjóra aðalskipulags og verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa og deildarstjóra aðalskipulags, dags. 28. október 2021.