Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 7. desember 2021 þar sem sótt er um leyfi til að breyta erindi, BN036042, þannig að svalir eru lengdar og dýpkaðar á suðurgafli á hesthúsi nr. 19 á lóð nr. 17-21 í Almannadal. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 26. mars 2021 fylgir erindi, ásamt bréfi skipulagsfulltrúa dags. 29. mars 2021. Erindi fylgir samþykki sumra meðeigenda lóð á teikningu og bréf frá umboðsmanni eiganda rýmis 0103. Gjald kr. 12.100