Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 19. febrúar 2016 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 16. febrúar 2016 þar sem sótt er um leyfi til að byggja steinsteypt níu íbúða fjölbýlishús, þrjár hæðir og kjallara með bílgeymslu á lóð nr. 114 við Úlfarsbraut. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 22. febrúar 2016.
Stærð A-rými: 1.300,9 ferm., 4.038,9 rúmm. B-rými: 152,6 ferm., C-rými: 22 ferm. Gjald kr. 10.100