breyting á deiliskipulagi
Vesturlandsvegur
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 3 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 700
5. október, 2018
Samþykkt
Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 21. september 2018 var lögð fram umsókn skrifstofu eigna og atvinnuþróunar dags. 20. september 2018 um framkvæmdaleyfi vegna losunar á umframefni frá framkvæmdasvæði við Vesturlandsveg við Esjumela í námu sem er í u.b.b 1,5 km. fjarlægð og tilheyrir Reykjavíkurborg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 5. október 2018..
Svar

Samþykkt að gefa út framkvæmdaleyfi með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 5. október 2018 . Vísað til skrifstofu sviðsstjóra til útgáfu framkvæmdaleyfis. Vakin er athygli á að greiða þarf fyrir útgáfu framkvæmdaleyfis skv. gr. 5.3 í . gjaldskrá skipulagsfulltrúa nr. 1193/2016.