Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 25. maí 2020 var lögð fram umsókn Finns Kristinssonar dags. 8. maí 2020 varðandi breytingu á skilmálum deiliskipulags Vesturlandsvegar. Gerðar eru textabreytingar í köflum 5.1, 5.3, 5.4. og 5.5 vegna útfærslu vegarins, samkvæmt uppfærðri greinargerð, skilmálum og umhverfisskýrslu dags. 7. júní 2018 br. 8. maí 2020. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Svar
Vísað til skipulags- og samgönguráðs. Vakin er athygli á að erindið fellur undir lið 8.2 í gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1231/2018.