Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lögð fram að nýju umsókn Sigurðar Hallgrímssonar f.h. Sigurðar Ólafssonar mótt. 5. október 2017 varðandi breytingu á deiliskipulagi Reynisvatnsás vegna lóðarinnar nr. 3 við Gissurargötu. Í breytingunni felst hækkun á nýtingarhlutfalli úr 0,5 í 0,52, samkvæmt uppdr. Arkþings ehf., dags. 20. september 2017. Tillagan var grenndarkynnt frá 15. desember 2017 til og með 12. janúar 2018. Engar athugasemdir bárust.