Lögð fram umsókn Sigurðar Hallgrímssonar f.h. Sigurðar Ólafssonar mótt. 5. október 2017 varðandi breytingu á deiliskipulagi Reynisvatnsás vegna lóðarinnar nr. 3 við Gissurargötu. Í breytingunni felst hækkun á nýtingarhlutfalli úr 0,5 í 0,52, samkvæmt uppdr. Arkþings ehf., dags. 20. september 2017.
Svar
Vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra. Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1193/2016