Garðskáli og fjarlægja svalalokunarskýli
Suðurlandsbraut 68-70
Síðast tekið fyrir á fundi fyrir 2 árum síðan.
Skipulagsfulltrúi nr. 478
7. febrúar, 2014
Annað
Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 24. janúar 2014 var lögð fram fyrirspurn Íbúða eldri borgara í Mörk ehf. dags. 22. janúar 2014 varðandi sameiningu lóðanna nr. 68 og 70 við Suðurlandsbraut, aukningu á byggingarmagni og stækkun lóðarinnar, samkvæmt uppdráttum og greinargerð Glámu-Kím dags. 21. janúar 2014. Einnig er lagt fram minnisblað Íbúða eldri borgara í Mörk ehf. dags. 22. janúar 2014. Fyrirspurninni var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju.
Svar

Kynna formanni umhverfis- og skipulagsráðs.