Lagt fram erindi Faxaflóahafna sf. dags. 14. febrúar 2011 varðandi breytingu á deiliskipulagi Vesturhafnar vegna lóðanna nr. 1, 1a, 1b, 3, 5, 7, 9, 11, 13, 13b, 7-11b og 13a-35 við Grandagarð. Í breytingunni felst að lóðirnar nr. 7-11b og nr. 13b eru felldar út, lóð nr. 13a-35 verður lóð nr. 15-37, lóðirnar 9 og 11 verður ein lóð nr. 9-11 ásamt því að breyting verður á kvöðum, samkvæmt uppdrætti Teiknistofu arkitekta Gylfa Guðjónssonar og félaga ehf. dags. 12. janúar 2011, breyttur 3. febrúar 2011.
Svar
Samþykkt að grenndarkynna tillöguna fyrir hagsmunaaðilum að Fiskislóð 2-8, 10 og 12 og Grandagarði 2, þegar uppdrættir hafa verið lagfærðir.