Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lagt fram að nýju erindi Umhverfis- og samgöngusviðs dags. 16. júní 2011 varðandi breytingu á deiliskipulagi Fossvogsdals. Í breytingunni felst að bæta við 2,5 m breiðum stíg sem verður í framhaldi af gangstétt við Árland, samkvæmt uppdrætti Landmótunar dags. 10. júní 2011. Tillagan var auglýst frá 13. júlí til og með 24. ágúst 2011. Engar athugasemdir bárust.