Lagt fram bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 29. mars 2011 þar sem spurt er hvort leyfi fengist til að byggja 32 ferm bílskúr sem kemur uppvið einbýlishúsið á lóð nr. 15 við Aragötu.
Svar
Ekki eru gerðar athugasemdir við erindið. Byggingarleyfisumsókn verður grenndarkynnt berist hún.