Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 22. janúar 2021 var lögð fram fyrirspurn Báru Skæringsdóttur dags. 15. janúar 2021 um að setja 15-18 m2 sólstofu við húsið nr. 19 á lóð nr. 13-29 við Krummahóla. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 28. janúar 2021.