Fyrirspurn
Að lokinni hagsmunaaðilakynningu er lögð fram að nýju tillaga að deiliskipulagi Teigahverfis norðan Sundlaugavegar dags. 14. desember 2010. Einnig lögð fram Húsakönnun Minjasafns Reykjavíkur skýrsla nr. 150 dags. 2009, endurskoðað varðveislumat Minjasafns Reykjavíkur vegna Bjargs dags. 23. febrúar 2010 og samantekt verkefnisstjóra dags. 6. ágúst 2010 varðandi ábendingar úr hagsmunaaðilakynningu. Á fundi skipulagsstjóra 4. febrúar 2011 var erindinu frestað og er nú lagt fram að nýju.