Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa var lögð fram fyrirspurn Alexanders Schepsky, mótt. 3. mars 2016, varðandi rekstur veitingasölu (take away) í húsinu á lóð nr. 7A við Geirsgötu. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 14. apríl 2016.