Á fundi skipulagsfulltrúa 12. september 2014 var lögð fram fyrirspurn
Kopars Restaurant ehf.
dags. 11. september 2014 varðandi byggingu glerskála við inngang veitingastaðarins Kopar á lóð nr. 3 við Geirsgötu, samkvæmt tillögu
Tvíhorfs sf.
ódags. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 26. september 2014.