Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa dags. 10. júní 2022 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 7. júní 2022 þar sem sótt er um leyfi til að byggja hesthús, fjögur rými í einni lengju á tveimur hæðum, kaffistofa og stoðrými á efri hæð í húsi nr. 9 á lóð nr. 9-15 við Almannadal. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 30. júní 2022.