Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 22. maí 2012 þar sem sótt er um leyfi til að byggja steinsteyptan bílskúr í norðvesturhorni lóðar fjölbýlishúss á lóð nr. 9 við Blönduhlíð. Erindið var grenndarkynnt frá 1. júní til og með 29. júní 2012. Eftirtaldir aðilar sendu inn athugasemdir: Húsfélagið Blönduhlíð 7 dags. 11. júní 2012.
Erindi fylgja fsp. BN044040, BN043234, BN040455 og BN039742 og samþykki meðeigenda áritað á uppdrátt sem dagsettur er 13. október 2011, breytt 10. maí 2012.
Stærð: 35,8 ferm., 112,3 rúmm.
Gjald kr. 8.500 + 9.546