Fyrirspurn
Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi Auðar S. Kristinsdóttur dags. 31. janúar 2011 varðandi breytingu á deiliskipulagi Þórsgötureits vegna lóðarinnar nr. 15 við Þórsgötu. Í breytingunni felst að byggingarreitur er stækkaður fyrir anddyri og svalir, samkvæmt uppdr. Kristins Baldurssonar dags. 3. janúar 2011. Tillagan var grenndarkynnt frá 16. febrúar 2011 til og með 16. mars 2011. Engar athugasemdir bárust.