Fyrirspurn
Á fundi skipulagsstjóra 27. apríl 2012 var lögð fram fyrirspurn Helgu Guðmundsdóttur dags. 27. apríl 2012 um að hækka ris, byggja kvisti og byggja verönd við húsið á lóðinni nr. 55 við Grettisgötu. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar hjá verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 3. maí 2012.