Lögð fram umsókn Ágústs Þórðarsonar, mótt. 27. september 2016, varðandi breytingu á deiliskipulagi fyrir Sundin vegna lóðarinnar nr. 42 við Efstasund. Í breytingunni felst að byggingarreitur B er breyttur þannig að innan reitsins rúmist allt að 40 fm. bílskúr sem liggur að lóðarmörkum í norður og vestur, samkvæmt uppdr. Nexus arkitekta, ódags.
Svar
Vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra. Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1111/2014.