Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 15. febrúar 2019 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 12. febrúar 2019 þar sem sótt er um leyfi til byggingar á opnu hjólaskýli fyrir reiðhjól á lóð nr. 2 við Sæmundargötu. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju.
Erindinu fylgir bréf frá hönnuði dags. 25.01.2019 ásamt mæliblaði gefnu út 27.10.2009 og endurútgefnu 19.03.2013. Gjald kr. 11.200