Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 30. september 2016 var lögð fram fyrirspurn N18 ehf., mótt. 16. ágúst 2016, um að afmarka lóð fyrir pylsuvagn sem staðsettur er við Laugardalslaug á lóð nr. 30 við Sundlaugaveg. Einnig er lagt fram bréf Árna Freys Árnasonar hdl. frá Kjarna lögmannsstofu, dags. 21. júlí 2016. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags.28. október 2016.