Á fundi skipulagsfulltrúa 8. janúar 2016 var lagt fram erindi skrifstofu borgarstjórnar, dags. 7. janúar 2015, þar sem óskað er eftir umsögn skipulagsfulltrúa á umsókn
100 Iceland ehf.
, um breytingu á rekstrarleyfi fyrir hótelið 100 Iceland að Laugavegi 100. Sótt er um breytingu úr flokki III í flokk V með veitingatíma áfengis til kl. 23:00 alla daga. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 13. janúar 2016.