Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 15. júní 2021 þar sem sótt er um leyfi til að byggja fjögurra hæða fjölbýlishús úr forsteyptum einingum með 13 íbúðum, atvinnurýmum á jarðhæð og kjallara með geymslum og bílastæðum fyrir níu bíla á lóð nr. 4 við Vatnsstíg. Erindi fylgir umboð til hönnuðar dags. 28. janúar 2021. Stærð, A-rými: 2.118,2 ferm., 6.435 rúmm. B-rými: xx ferm. Gjald kr. 12.100