Lögð fram fyrirspurn
Nýs Landspítala ohf.
dags. 26. mars 2019 ásamt bréfi SPITAL dags. 26. mars 2019 varðandi tengibrú yfir Hrafnsgötu sem tengir Meðferðarkjarna og Barnaspítala Nýs Landspítala. Óskað er eftir undanþágu frá 6.4.11 gr. byggingarreglugerðar í tveimur atriðum. Annars vegar er óskað eftir að hvíldarpalli sé sleppt og hins vegar að skábraut fái að vera með halla 52,6 eða 1:19. Einnig er lögð fram tillaga Teiknistofunnar Tröð dags. 12. mars 2019.