Að lokinni grenndarkynningu er lagt fram að nýju erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 15. mars 2016 þar sem sótt er um leyfi til að innrétta veitingahús í flokki I fyrir 14 gesti og veitingastað í flokki II fyrir 42 gesti á 1. og 2. hæð og breyta skipulagi íbúða á 2. 3. og 4. hæð og gera svalir á bakhlið íbúðar- og atvinnuhúss á lóð nr. 21A við Skólavörðustíg. Erindi var grenndarkynnt frá 6. apríl til og með 4. maí. Eftirtaldir aðilar sendu inn athugasemdir: Jónína Hólmfríður Hafliðadóttir f.h. eigenda og íbúa húseignarinnar að Njálsgötu 2, dags. 18. apríl 2016. Erindi fylgir umsögn skipulagsfulltrúa dags. 14. september 2015 og umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 2. júní 2015. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 4. desember 2015 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 4. desember 2015. Gjald kr. 9.823