Lögð fram fyrirspurn ASK Arkitekta ehf., mótt. 31. október 2016, varðandi breytingu á deiliskipulagi vegna lóðarinnar nr. 6 við Álagranda. Í breytingunni felst að bæta við nýjum byggingarreit á lóð fyrir hús sem nýtt verður sem vinnuherbergi/tómstundaherbergi, samkvæmt uppdr. ASK Arkitekta ehf., dags. 28. október 2016.
Svar
Vísað til umsagnar verkefnisstjóra. Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1111/2014.