Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 8. janúar 2016 var lögð fram fyrirspurn Sigurðar Hafsteinssonar, mótt. 18. desember 2015 varðandi fjölgun íbúða í húsinu á lóð nr. 24-26 við Tangabryggju. Einnig er lagt fram bréf Björns Ó. Ólafssonar arkitekts, dags. 14. desember 2015. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 14. janúar 2016.