Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 7. nóvember 2019 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa þar sem sótt er um leyfi til þess að breyta geymslu í ósamþykkta einstaklingsíbúð og er um að ræða áður gerðar breytingar á mhl.04, Skólavörðustíg 2 á lóð nr. 14-14B við Bankastræti. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 22. nóvember 2019.
Stærð: 32.4 ferm., 75.4 rúmm. Jafnframt hefur erindi BN056551 verið dregið til baka sbr. tölvupóst frá hönnuði dags. 30. nóvember 2019. Gjald kr. 11.200