Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga skipulags- og byggingarsviðs að deiliskipulagi Grundarstígsreits dags. 3. mars 2011, sem afmarkast af Grundarstíg, Spítalastíg, Þingholtsstræti og Skálholtsstíg. Tillagan var auglýst frá 6. júlí til 30. ágúst 2011. Eftirtaldir aðilar sendu inn athugasemd: Magnús Skúlason f.h. stjórnar Íbúasamtaka Miðborgar dags. 16. ágúst 2011, Haukur Gíslason, Grundarstíg 9, dags. 12. ágúst 2011 og undirskriftalisti 25. íbúa mótt. 19. ágúst 2011.