Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lagt fram að nýju erindi Kristjáns Sverrissonar f.h. Hrísar ehf. dags. 17. janúar 2013 varðandi breytingu á deiliskipulagi Bryggjuhverfis vegna lóðarinnar nr. 14-16 við Tangabryggju. Í breytingunni felst að breyta atvinnuhúsnæði í blandað atvinnu- og íbúðarhúsnæði ásamt að því að afmarka lóð fyrir sorpskýli og skýli fyrir reiðhjól, samkvæmt uppdr. Vinnustofunnar Þverá ehf. dags. 16. janúar 2013. Einnig er kynnt minnisblað umhverfis-og samgöngusviðs dags. 21. janúar 2013. Tillagan var auglýst frá 8. febrúar til og með 22. mars 2013. Engar athugasemdir bárust.