Lögð fram umsókn
Hraunbrautar ehf.
dags. 4. september 2014 varðandi breytingu á deiliskipulagi Bryggjuhverfis vegna lóðarinnar nr. 14-16 við Tangabryggju. Í breytingunni felst breyting á notkun 1. hæðar hússins í íbúðir og eða atvinnuhúsnæði, samkvæmt uppdr. Vinnustofunnar Þverá ehf. dags. 20. ágúst 2014.
Svar
Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu að breytingu á deiliskipulagi fyrir hagsmunaaðilum að Tangabryggju 18-22 og Naustabryggju 35 og 37. Jafnframt er samþykkt að kynna tillöguna fyrir Bryggjuráði og hverfisráði.