Á fundi skipulagsfulltrúa 21. júní 2013 var lagt fram bréf Landslaga dags. 4. júní 2013 varðandi breytingu á deiliskipulagi Foldahverfis, 3. áfanga, vegna lóðarinnar nr. 63 við Fannafold. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra og skrifsstofu sviðstjóra og er nú lagt fram að nýju. Einnig lögð fram tillaga skipulagsfulltrúa að breytingu á skilmálum deiliskipulagsins dags. 16. október 2013.