Lagt fram erindi af afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 14. júlí 2015 þar sem sótt er um leyfi til að endurnýja og portbyggja þak og byggja nýtt bíslag við einbýlishús á lóð nr. 6 við Fossagötu. Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsfulltrúa frá 12. júní 2015 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 9. júní 2015. Einnig umsögn Minjastofnunar Íslands dags. 26. júní 2015. Stækkun: 29,7 ferm., 178,8 rúmm. Gjald kr. 9.823
Svar
Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Fossagötu 1, 4, 7 og 8 og Þjórsárgötu 3 og 5.