Lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 8. maí 2012 þar sem sótt er um leyfi til að hækka útbyggingu til vesturs um eina hæð sbr. erindi BN042400 við einbýlishúsið á lóðinni nr. 11 við Sjafnargötu. Meðfylgjandi er útskrift úr gerðabók skipulagsráðs frá 11. apríl 2012. Stækkun: 13,4 ferm., 37,2 rúmm. Nýtingarhlutfall 0,58 Gjald kr. 8.500 + 3.162
Svar
Samþykkt að grenndarkynna framlagða tillögu fyrir hagsmunaaðilum að Sjafnargötu 9, 12 og 14, Freyjugötu 38, 40 og 42 ásamt Mímisvegi 8.