Lögð fram umsókn Smára Viðars Grétarssonar dags. 24. júní 2018 varðandi breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar að Brautarási 19, lóðir nr. 1 - 19. Í breytingunni felst stækkun lóðar um 2m í átt að suð, suð-vesturs samkvæmt meðf. uppdrætti Apparat dags. 13. júní 2018. Meðfylgjandi er undirritun meðlóðarhafa við Brautarás 1-17.
Svar
Vísað til Skipulags- og samgönguráðs. Vakin er athygli umsækjanda á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1193/2016.