Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 17. ágúst 2018 var lögð fram fyrirspurn Fjólu Kristínar Nikulásdóttur dags. 9. ágúst 2018 um að fella niður kvöð um gangrétt á lóð nr. 44 við Framnesveg. Fyrirspurninni var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lögð fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 30. ágúst 2018.