Fyrirspurn
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 9. desember 2016 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 6. desember 2016 þar sem sótt er um breytingar á áður samþykktu erindi BN037843 vegna lokaúttektar, innra skipulagi kjallara er breytt og íbúð stækkuð inní áður óuppfyllt sökkulrými, ásamt því að breyta svalahandriðum í parhúsi á lóð nr. 36-38 við Lofnarbrunn. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 6. janúar 2017.
Stækkun x ferm., x rúmm. Gjald kr. 10.100