Fyrirspurn
Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju tillaga umhverfis- og skipulagssviðs varðandi breytingu á deiliskipulagi Víkurhverfis vegna lóðarinnar nr. 10 við Hamravík, Kelduskóli. Í breytingunni felst að sameina leikvallarlóð í norðri og skólalóð og setja þar upp boltagerði, samkvæmt uppdr. umhverfis- og skipulagssviðs dags. 14. júní 2013. Tillagan var í auglýsingu frá 15. júlí til og með 27. ágúst 2013. Engar athugasemdir bárust.