Fyrirspurn
Á fundi skipulagsfulltrúa 15. nóvember 2013 var lagt fram erindi frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 12. nóvember 2013 þar sem spurt er hvort veitingaleyfi fengist fyrir veitingahúsi og endurskoðun á veitingahúss kóta á 1. hæð í húsi á lóð nr. 23 við Skólavörðustíg. Erindinu var vísað til umsagnar verkefnisstjóra og er nú lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 21. nóvember 2013.