Lögð fram umsókn
Arkís arkitekta ehf.
, mótt. 27. september 2017, varðandi breytingu á deiliskipulagi Heiðargerðisreits vegna lóðarinnar nr. 7 við Hvammsgerði. Í breytingunni felst að byggingarreitur er stækkaður á hluta suðurhliðar um 12 fm. og nýtingarhlutfall hækkað úr 0,45 í 0,48, samkvæmt uppdr. Arkís askitekta ehf., dags. 31. ágúst 2017. Einnig er lagt fram bréf
Arkís arkitekta ehf.
, dags. 27. september 2017.
Svar
Vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra. Vakin er athygli á að erindið fellur undir gjaldskrá vegna kostnaðar við skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis í Reykjavíkurborg nr. 1193/2016