Fyrirspurn
Á fundi skipulagsstjóra 4. febrúar 2011 var lagt fram bréf frá afgreiðslufundi byggingarfulltrúa frá 1. febrúar 2011 þar sem sótt er um leyfi til að byggja steinsteypt einbýlishús, hæð og kjallara með innbyggðri bílgeymslu á lóð nr. 10 við Bauganes. Erindinu var vísað til meðferðar hjá verkefnisstjóra svæðisins og er nú lagt fram að nýju ásamt minnisblaði skipulagsstjóra dags. 10. febrúar 2011.
Kjallari: 97 ferm., 1. hæð 211,5 ferm., bílgeymsla 33,5 ferm.
Samtals: 342,0 ferm., 1.301,5 rúmm.
Gjald kr. 8.000 + 104.120