Að lokinni auglýsingu er lögð fram að nýju umsókn
Kanon arkitekta ehf.
dags. 8. febrúar 2019 varðandi breytingu á deiliskipulagi Suður Seláss og Norðlingaholts. Í breytingunni felst að gera byggingarreit fyrir nýtt lokahús norðan við Breiðholtbraut neðan við þingás, samkvæmt uppdr.
Kanon arkitekta ehf.
dags. 8. febrúar 2019. Tillagan var auglýst frá 27. mars 2019 til og með 8. maí 2019. Engar athugasemdir bárust. Einnig er lagður fram tölvupóstur Veitna dags. 17. febrúar 2020 þar sem umsókn er dregin til baka.