Fyrirspurn
Sótt er um leyfi til að byggja úr steinsteypu, múrhúðað og einangrað að innan, fjögurra hæða fjölbýlishús með kjallara og 17 íbúðum mhl. 01 nr. 20 á lóð nr. 20-24 við Skyggnisbraut.
Útskrift úr gerðabók embættisafgreiðslufundar skipulagsstjóra frá 6. janúar 2011 fylgir erindinu ásamt umsögn skipulagsstjóra dags. 3. janúar 2011. Einnig eru lagðir fram nýjir uppdrættir KRark dags. 20. janúar 2011.
Stærðir: kjallari 277,5 - 1. hæð 283,8 - 2. hæð 283,8 - 3. hæð 283,8 og 4. hæð 283,8 ferm.,
Samtals 1.410,7 ferm, 4.110,3 rúmm.
Lóðarstærð 4.793 ferm., nýtingarhlutfall 0,29.
Gjald kr. 7.700 + 316.493