Leiðrétt bókun frá síðasta afgreiðslufundi skipulagsstjóra dags. 14. janúar 2011. Bókunin var: "Ekki eru gerðar athugasemdir við að umsækjandi láti vinna tillögu að breytingu á deiliskipulagi, á eigin kostnað, með vísan til umsagnar skipulagsstjóra. Tillagan verður grenndarkynnt eða auglýst þegar hún berst"
Rétt bókun er "Ekki eru gerðar athugasemdir við að unnin verði breyting á deiliskipulagi Nýlendureits, með vísan til umsagnar skipulagsstjóra. Tillagan verður grenndarkynnt eða auglýst þegar hún berst.